|
2. september 2010 15:06 |
Æfingar Sela hefjast í dag |
Í dag hefjast æfingar Sela 1, 2 og 3 í Bjarnalaug. Bjarney, Jóna Axel og Örn Viljar verða þjálfarar Selanna í vetur.
Vonandi verður hægt að fara í laugina í dag en í rafmagnsbiluninni í gær bilaði einhver búnaður í lauginni. Ef ekki verður farið í útileiki og kannski pottinn. |
| |
30. ágúst 2010 14:43 |
Æfingar að hefjast hjá öllum hópum |
Æfingar hjá öllum hópum Sundfélags Akraness eru hafnar eða hefjast í næstu viku. A, B og C hópar eru byrjaðir en í C hóp eru sundmenn fæddir 1998-2000. Selir byrja á fimmtudaginn 2. september, en í Selum eru sundmenn fæddir 2001-2003. Kópar byrja 7. september en í Kópum eru sundmenn fæddir 2004. Krossfiskar, sem eru fæddir 2005-2006 byrja 8. september. Þá hefst ungbarnasund/Fjörfiskar fyrir 0-3 ára, sunnudaginn 5. september. Nánari upplýsingar má finna í: stundaskrá, nafnalistum og starfsáætlun en þó er ekki enn búið að ganga frá hópaskiptingu Kópa og Krossfiska. Hægt er að skrá sig í sundhópa hér á vefnum.
|
| |
27. ágúst 2010 22:29 |
Faxaflóasund á morgun |
Á morgun, laugardaginn 28. ágúst syndir Sundfélag Akraness sitt árlega Faxaflóasund frá Reykjavíkurhöfn og á Langasand, alls um 22km. Sundið fer þannig fram að einn sundmaður syndir í einu í fylgd hafnsögubáts frá Faxaflóahöfnum og björgunarbáts frá Björgunarfélagi Akraness. Sundið er áheitasund og hafa bæði einstaklingar og fyrirtæki heitið duglega á sundmennina takist þeim sundið. Áætluð koma á Langasand er um kl. 15:00.
|
| |
20. ágúst 2010 22:31 |
Þjálfarar óskast fyrir Seli 1 og 2 |
Sundfélag Akraness óskar eftir þjálfara eða þjálfurum fyrir Seli 1 og Seli 2. Æfingar þeirra eru á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum frá 16-17 og 17-18. Góð laun í boði.
Áhugasamir hafi samband sem fyrst við Gunnar gunnar@sundfelag.com eða í síma 8963412. |
| |
20. ágúst 2010 17:34 |
Sundkeppni lokið á Ólympíuleikum ungmenna í Singapore |
Í morgun lauk sundkeppni á Ólympíuleikum ungmenna í Singapore þar sem Inga Elín Cryer Sundfélagi Akraness keppti í tveimur greinum fyrir Íslands hönd.
Aðfaranótt sunnudagsins 15. ágúst synti hún 200m fjórsund þar sem hún hafnaði í 18. sæti af 26 og bætti sig um u.þ.b. eina og hálfa sekúndu. |
meira... |
| |
14. ágúst 2010 12:11 |
Ólympíuleikar ungmenna í beinni |
Hér er hægt að horfa á Ólympíuleika ungmenna í Singapore í beinni: http://www.youtholympicgames.org/
Núna er að líða að opnunarhátíðinni og þess ber að geta að fánaberi Íslands er enginn annar en Hrafn Traustason. |
| |
11. ágúst 2010 13:31 |
Fundur v/Faxaflóasunds |
Á fimmtudaginn kl. 20:00 ætlum við að hittast að Jaðarsbökkum til að setja í gang fjáröflun vegna Faxaflóasunds sem verður seinna í mánuðinum. Þessi fjáröflun er fyrir næstu "Spánarferð" sem er á áætlun 2012. Þeir sem fara í þá ferð eru sundmenn fæddir 1998 og fyrr. Mikilvægt að allir mæti.
Stjórn
|
| |
10. ágúst 2010 14:12 |
Sundmenn á unglingalandsmóti |
Sex sundmenn frá Sundfélagi Akraness tóku þátt í Unglingalandsmótinu í Borgarnesi um verslunarmannahelgina. Anna Chukwunonso Eze vann til flestra verðlauna en að þessu sinni keppti hún fyrir Skipaskaga. Þátttaka í unglingalandsmóti er þó aðallega til skemmtunar og markmiðið að vera með og gera sitt besta í góðum félagsskap.
Úrslit sundkeppninnar |
| |
10. ágúst 2010 13:58 |
Inga Elín á Ólympíuleikum ungmenna |
6. ágúst 2010 17:00 |
Benidorm hópurinn kemur heim á morgun |
28. júlí 2010 21:09 |
GPO Akranes Natacion |
27. júlí 2010 20:19 |
Allt í góðu á Benidorm |
12. júlí 2010 13:23 |
Styttist í æfingabúðir |
8. júlí 2010 13:15 |
A/B hópur ætlar að hjóla fyrir Hvalfjörð |
4. júlí 2010 14:11 |
Arta með Akranesmet í Noregi |
1. júlí 2010 21:06 |
Tveir Skagamenn keppa með unglingalandsliði Íslands í sundi um helgina |
29. júní 2010 21:52 |
Akranesmet |
27. júní 2010 23:17 |
AMÍ lokið |
26. júní 2010 23:48 |
Skagamenn í þriðja sæti |
25. júní 2010 22:11 |
Enn bætast við titlar á AMÍ |
24. júní 2010 20:06 |
Glæsilegur fyrsti dagur á AMÍ |
23. júní 2010 15:58 |
AMÍ 2010 |
18. júní 2010 22:55 |
Höfrungar og C í fyrramálið í Bjarnalaug |
18. júní 2010 14:57 |
Höfrungar og C/B kl. 16:00 í Bjarnalaug |
eldri fréttir
|